Stjórnmál og Stjórnsýsla (Dec 2013)
Össur Skarphéðinsson: Ár drekans. Dagbók utanríkisráðherra á umbrotatímum
Abstract
Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: Bókin er unnin upp úr dagbókum höfundar á árinu 2012. Enda þótt bókin lúti ekki kröfum sagnfræðinnar hefur hún ótvírætt heimildargildi um atburði frá sjónarhóli manns í fremstu röð. Lýst er mikum átökum á vettvangi stjórnmálanna og milli forseta og ríkisstjórnar. Ítarlega er greint frá viðfangsefnum utanríkisráðherra innanlands og utan. Bókin er frábærlega vel skrifuð, fróðleg og skemmtileg.